Landslið sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Landslið sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu

Íslenski sjávarklasinn velur árlega 20 sprotafyrirtæki sem móta framtíð bláa hagkerfisins á Íslandi, svokallað Landslið sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu — og Dóttir Skin er stolt af því að vera hluti af því árið 2026.

Fyrirtækin á listanum vinna að lausnum sem auka verðmætasköpun, bæta nýtingu auðlinda og styðja við sjálfbæra þróun. Frá upphafi hefur Dóttir Skin þróað vörur sem sækja innblástur í íslenska náttúru og vísindi, þar sem lögð er rík áhersla á sjálfbærni, gæði og að sjálfsögðu virkni. Sú nálgun okkar birtist m.a. í Alda ['al:ta] Essence Serum , þar sem ensím úr Norður-Atlantshafsþorski, unnin með einkaleyfisvarinni ensímtækni, eru nýtt.

Ensímin styðja við endurnýjun húðar með mildri ensímvirkri húðslípun, á sama tíma og þau veita raka og örva kollagenframleiðslu. Þau vinna einnig gegn algengum húðáskorunum með því að hreinsa yfirborð húðar á mildan hátt og stuðla að bjartari, stinnari og heilbrigðari húð.


Að vera valin í Landslið sprotafyrirtækja í bláa hagkerfinu er ótrúleg viðurkenning – sérstaklega þar sem Dóttir Skin hefur aðeins verið á íslenskum markaði í rúmt ár. Hún styrkir okkur í trú okkar á verkefnið og hvetur okkur áfram.

Við þökkum Íslenska sjávarklasanum kærlega fyrir traustið og hlökkum til að halda áfram að leggja okkar af mörkum til framtíðar bláa hagkerfisins á Íslandi.

Lesa grein á mbl.is

Back to blog