Bestu íslensku vörumerkin 2025
Share
Við erum ótrúlega þakklát og stolt.
Dóttir Skin hefur verið tilnefnt sem eitt af Bestu íslensku vörumerkjunum á einstaklingsmarkaði árið 2025 hjá Brandr – og það á sama tíma og við höfum aðeins verið á íslenskum markaði í rúmt ár. Fyrir okkur er þetta stórkostlegur áfangi og þvílík viðurkenning á því sem við höfum verið að byggja upp síðustu misserin.
Kærar þakkir til Brandr fyrir þessa viðurkenningu og innilegar hamingjuóskir til allra hinna frábæru vörumerkjanna sem hlutu tilnefningu.
Hægt er að skoða listann yfir Bestu íslensku vörumerkin á vef Brandr.